Upplýsingar á vef ESB 

 

Upplýsingar á vef EACEA 

 

Evrópusamvinna heimasíða

 

 

 

 

Comenius net miða að því að tengja saman aðila sem hafa unnið að Comenius verkefnum í ákveðnum málaflokkum með það að markmiði að ýta undir evrópska samvinnu og nýjungar í menntamálum.
 

Markmið

  • Að auðvelda samstarf verkefna sem eru á svipuðu sviði,
  • Að vinna að útbreiðslu þekkingar á árangursríkum aðferðum,
  • Að koma á vettvangi þar sem gæði og nýjungar í menntamálum verða í brennidepli
     

Styrkir

Styrkir eru veittir til:

  • Stýringar/umsjónar: Þróun heimasíða og gagnagrunna, fundarhöld, skýrslugerðir og svo framvegis.
  • Heimsóknarstyrkja innan verkefna til að taka þátt í hópvinnu og ráðstefnum
  • Samstarfs við önnur skólanet eða verkefni.
  • Starfsemi skólaneta: Skipuleggja vinnuhópa, endurmenntun, fundi, ráðstefnur, rannsóknarverkefni, samanburðarverkefni og svo framvegis
     

Lengd verkefna

Verkefni geta varað í allt að þrjú ár, svo framarlega að verkáætlun og markmið standist.
 

Skilyrði

Að minnsta kosti tíu skólar/stofnanir frá tíu þátttökulöndum menntaáætlunar ESB verða að standa að verkefninu. Verkefni skal stjórnað af skóla á háskólastigi eða stofnun á sviði menntamála.
 

Umsóknarfrestur er til 27. febrúar 2010

Umsókn vegna Comenius neta skal vera á ensku og á að sendast í fjórum eintökum til framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins í Brussel. Afrit skal sent til:

Landskrifstofu Menntaáætlunar ESB
Háskólatorgi v/Sæmundargötu
101 Reykjavík

Umsóknareyðublöð eru á heimasíðu framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins. [linkur]