Markmið Menntaáætlunar ESB er að stuðla að þróun öflugs þekkingarsamfélags í Evrópu. Sérstök áhersla er lögð á samskipti, samstarf, samnýtingu reynslu og þekkingar um menntun og þjálfun í Evrópu.
Comenius miðar að því að koma á gæðastarfi í skólum og tryggja Evrópuvitund í menntun. Styrkt eru fjölþjóðleg samstarfsverkefni við skóla víðs vegar í Evrópu. Einnig er lögð áhersla á að auka möguleika til endurmenntunar og starfsþjálfunar kennara og efla tungumálanám á öllum skólastigum.
Þátttaka íslenskra skóla
- Yfir 1500 nemendur hafa farið í ferðir/nemendaskipti í Comenius verkefnum
- 2400 kennarar hafa fengið styrki til að sækja námskeið og fundi í Evrópu
- 170 skólar á leik-, grunn- og framhaldsskólastigi hafa tekið þátt í skólaverkefnum
- 4000 nemendur og 100 kennarar eru ár hvert þátttakendur í evrópsku skólasamstarfi



