Upplýsingar á vef ESB 

 

Upplýsingar á vef EACEA 

 

Evrópusamvinna heimasíða

 

 

 

 

Á vegum eTwinning er ýmislegt gert til þess að hvetja kennara til dáða, gera vinnu þeirra sýnilegri og umbuna fyrir góð verkefni.

Landskeppni eTwinning á Íslandi

Landskeppni eTwinning er samkeppni á vegum landskrifstofunnar um frambærilegustu eTwinning verkefnin sem íslenskir skólar taka þátt í á hverju skólaári. Landskeppnin var haldin í fyrsta skipti á skólaárinu 2006-2007.

Skráningarfrestur í landskeppni síðasta skólaárs (2008-2009) var til og með 1. október næstkomandi.

Frekari upplýsingar á stikunni til vinstri.
 

Evrópsku eTwinningverðlaunin

Evrópsku eTwinningverðlaunin eru veitt á árlegri stórráðstefnu eTwinning fyrir frambærilegust verkefnin í álfunni. Veitt eru glæsileg verðlaun í mismunandi flokkum. Handhöfum fyrstu verðlauna, bæði kennurum og nemendum, er boðið til skólabúða um rafræna menntun á sólríkum stað sunnarlega í álfunni. Kennarar skrá verkefni sín sjálfir til leiks. Umsóknarfrestur er auglýstur með góðum fyrirvara af landskrifstofunni.

Ath. að evrópska gæðaviðurkenning eTwinning er nú skilyrði þess að taka þátt í Evrópuverðlaununum. Það er gert með því að sækja um gæðamerki sinnar landskrifstofu -- sem er mjög einfalt.

Umsóknarfrestur um gæðamerkið var 25. september.

Sjá leiðbeiningar neðar á þessari síðu.

Upplýsingar um Evrópuverðlaunin á aðalsíðu eTwinning
 

Gæðaviðurkenning eTwinning

Kennarar geta sótt um gæðaviðurkenningu til sinnar landskrifstofu. Ef aðrir aðstandendur verkefnisins fá gæðamerki frá sínum landskrifstofum er viðkomandi skólum veitt gæðamerki miðstöðvar eTwinning í Evrópu (European Quality Label). Gæðamerkið hefur þann tilgang að gera árangur skólans sýnilegri og geta skólar sett það upp á sinni heimasíðu.

Evrópska gæðamerkið er skilyrði þess að verkefni geti tekið þátt í Evrópuverðlaunum eTwinning. Þeir sem hyggja á þátttöku verða því að sækja um gæðamerki sinnar landskrifstofu. Það er mjög einfalt. Farið inn á ykkar eTwinning-svæði (eTwinning desktop), og sækið um gæðamerkið undir My Projects, hægra megin (sjá mynd).

Umsóknarfrestur um gæðamerkið var 25. september.
 

Leiðbeiningar - hvernig á að sækja um gæðamerki