Upplýsingar á vef ESB 

 

Upplýsingar á vef EACEA 

 

Evrópusamvinna heimasíða

 

 

 

 

Örugg og ábyrg netnotkun barna og ungmenna er lykilatriði í eTwinning. Sem dæmi má nefna rafrænu kennslustofuna TwinSpace sem er öruggur vettvangur þar sem aðeins kennarar og nemendur þeirra hafa aðgang.

Netöryggi og ábyrg netnotkun er einnig upplagt þema til þess að vinna með – eTwinning er kjörinn vettvangur til þess að auka vitund nemenda um öryggi, ábyrgð og virðingu í netheimum.

Hér á eftir eru nokkur heilræði um netöryggi á vegum Samfélags, fjölskyldu og tækni (SAFT). SAFT er hluti af evrópska Insafe netinu sem vinnur ötullega að netöryggismálum barna og unglinga. eTwinning hefur átt í gott samstarf við Insafe, m.a. um samkeppni tengda alþjóða netöryggisdeginum.
 

Netorðin fimm

  1. Allt sem þú gerir á Netinu endurspeglar hver þú ert
  2. Komdu fram við aðra eins og þú vilt láta koma fram við þig
  3. Ekki taka þátt í neinu sem þú veist ekki hvað er
  4. Mundu að efni sem þú setur á Netið er öllum opið, alltaf
  5. Þú berð ábyrgð á því sem þú segir og gerir á Netinu

Nánar um netorðin fimm á vefsíðu SAFT

Ungt fólk, tónlist, kvikmyndir og netið

Hvernig eiga forráðamenn að snúa sér varðandi niðurhal og dreifingu efnis á Internetinu? Skoðið þennan gagnlega bækling.
 

Kannið PEGI merkingar leiksins

Pan European Games Information (PEGI) er nýtt samevrópskt flokkurnarkerfi til að setja aldurstakmörk fyrir gagnvirka leiki. Kerfið var þróað af Evrópusamtökum um gagnvirkann hugbúnað (ISFE) og er stutt af nokkrum helstu tölvuleikjaframleiðendum heims.

Nánar um PEGI merkingar á vefsíðu SAFT

Flokkunarkerfi PEGI
Flokkunarkerfi PEGI

 


10 Netheilræði

  1. Uppgötvið Netið saman
  2. Gerðu samkomulag við barnið um netnotkun á heimilinu
  3. Hvettu barnið til að vera gætið þegar það veitir persónulegar upplýsingar
  4. Ræddu um þá áhættu sem fylgir því að hitta netvin
  5. Kenndu barninu þínu að skoða efni á Netinu með gagnrýnum hætti
  6. Haltu vöku þinni – það er vel hugsanlegt að barnið rekist á efni á Netinu einungis ætlað fullorðnum
  7. Komdu upplýsingum um það sem þú telur ólöglegt efni til réttra yfirvalda
  8. Hvetjið til góðra netsiða
  9. Kynntu þér netnotkun barnsins þíns
  10. Mundu að jákvæðir þættir Netsins eru mun fleiri en hinir neikvæðu


   Nánar um netheilræðin tíu á vefsíðu SAFT