Upplýsingar á vef ESB 

 

Upplýsingar á vef EACEA 

 

Evrópusamvinna heimasíða

 

 

 

 

eTwinning gefur kennurum færi á að sækja viðburði víðsvegar um Evrópu á hverju skólaári.
 

Málstofur

Árlega eru haldnar málstofur víðsvegar um Evrópu sem eiga að gefa kennurum eða öðrum sem starfa að skólamálum tækifæri til starfsþjálfunar eða endurmenntunar á sviði rafrænnar menntunar (Professional Development Workshops). Málstofurnar eru einnig tengslaráðstefnur og því góður vettvangur til þess að koma samstarfi á laggirnar.

Þrátt fyrir að málstofurnar séu fyrst og fremst ætlaðar kennurum og skólastjórnendum eru inn á milli málstofur ætlaðir öðrum sem starfa að skólamálum, t.d. fræðslustjórum og starfsfólki skólaskrifstofa.

Landskrifstofan getur boðið takmörkuðum fjölda (oftast fimm til sex) á málstofur á hverju skólaári og auglýsir eftir umsóknum áhugasamra. Það fer eftir hverri málstofu fyrir sig hvort hún miðast við byrjendur eða lengra komna.

Frekari upplýsingar á stikunni til vinstri.
 

Hin árlega eTwinningráðstefna

Árlega er haldin stór ráðstefna á vegum eTwinning í Evrópu en fór sú fyrsta fram í byrjun árs 2005. Frítt föruneyti íslenskra kennara ásamt starfsfólki Landskrifstofunnar hefur tekið þátt í hverri ráðstefnu við góðan orðstír. Fjöldi kennara takamarkast við fjóra til fimm og er að öllu jöfnu lögð áhersla á þá sem eru með reynslu af eTwinning.

Frekari upplýsingar á stikunni til vinstri.
 

Aðrir viðburðir

Öðru hverju gefst Landskrifstofunni færi á að bjóða kennurum á aðra viðburði, t.d. verðlaunahátíðir eða ráðstefnur á vegum annarra landskrifstofa. Metið er í hverju tilfelli fyrir sig hverjum er boðið. Vorið 2007 fóru tveir kennarar ásamt fulltrúa landskrifstofunnar á eTwinninghátíð á Möltu.