Skráning kennara eða samstarfs er einfalt mál og tekur ekki nema nokkrar mínútur og fer fram á aðalsíðu eTwinning (undir "Register"):
Aðalsíða www.etwinning.net
Athugið að með skráningu í eTwinning fylgir engin skuldbinding um frekari þátttöku.
Skráning kennara
Gott er að hafa í huga grófa hugmynd að verkefni áður en þú skráir þig en það gerir skráninguna markvissari og auðveldar leitina að samstarfsaðila. Með því að leita að ákveðnum hugtökum, t.d. 'cultural diversity' og jafnvel takmarka leitina við ákveðin lönd, verður leitin markvissari og líkur aukast um leið á því að þú finnir réttan samstarfsaðila.
Skráning samstarfs
Þegar verið er að leita að samstarfsaðila eru mögulegir samstarfskennarar vistaðir í My Candidates-möppunni með því að velja plúsinn. Í þeirri möppu er hægt að vista fleiri en einn aðila. Frá þeirri möppu er síðan hægt að hafa samband við viðkomandi og semja um sameiginlegt samstarf að verkefni.
Finna samstarfsaðila og skrá verkefnið:
- Leitið að samstarfsaðila með því að nota TwinFinder.
- Veljið mögulega samstarfsaðila og geymið þá í My Candidates möppunni.
- Ræðið mögulegt samstarf með því að nota internal messages, chats eða í gegnum tölvupóst.
- Þegar þú hefur ákveðið að taka upp samstarf, getur einn samstarfsskólanna skráð verkefnið.



